Veftré Print page English

Samstarf við Grænland


Forseti á fund með forsætisráðherra Grænlands, Aleqa Hammond, þar sem rætt var um vaxandi samstarf Íslands og Grænlands, einkum með tilliti til aukins mikilvægis Norðurslóða. Þar blasa við mörg verkefni á sviði viðskipta, vísinda og rannsókna. Hammond flutti ræðu á opnunarfundi alþjóðaþingsins Arctic Circle sem haldið var í Hörpu og lýsti áhuga á að sú umræða sem þar fór fram gæti haldið áfram á Grænlandi á næsta ári.