Veftré Print page English

Heimskautaréttur


Forseti flytur ávarp á alþjóðlegri ráðstefnu um heimskautarétt, Symposium on Polar Law, sem haldið er í Háskólanum á Akureyri. Í ávarpinu þakkaði forseti forystumönnum um þetta fræðasamstarf fyrir það hvernig þeir hefðu aukið skilning og þekkingu á Norðurskautsrétti, réttindum frumbyggja og beitingu alþjóðalaga til að efla samvinnu á þessu svæði. Jafnframt þakkaði forseti forystumönnunum fyrir þátttöku þeirra í að skapa Hringborð Norðurslóða, Arctic Circle, sem heldur sitt fyrsta alþjóðlega þing í Reykjavík um helgina.