Veftré Print page English

Vísindasamstarf við Indland


Forseti á fund með vísindamönnum frá Wadia stofnuninni í Dehradoon í Indlandi um samstarf við íslenska vísindamenn á sviði jarðskjálftarannsókna, jöklafræði og annarra náttúruvísinda. Fundinn sátu einnig Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðingur, Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur og Ingvar Kristinsson þróunarstjóri Veðurstofunnar auk sendiherra Indlands á Íslandi.