Veftré Print page English

Ungt fólk, atvinnumál og menntun


Forseti á fund með Runólfi Ágústssyni um reynsluna af átaki undanfarinna ára til að auðvelda ungu fólki leiðina frá atvinnuleysi til menntunar og starfa. Samtök launafólks og atvinnulífs tóku ásamt stjórnvöldum og skólakerfi virkan þátt í þessu verkefni sem mjög hefur stuðlað að því að draga úr atvinnuleysi ungs fólks á undanförnum árum. Verkefnið er á margan hátt lærdómsríkt og áhugavert fyrir þau lönd sem glíma við viðvarandi atvinnuleysi ungs fólks.