Veftré Print page English

Stjórnvöld Pétursborgar


Forseti á fund með stjórnvöldum Pétursborgar í Rússlandi um þróun samstarfs á Norðurslóðum, aukin viðskipti Íslendinga í Rússlandi, áætlunarflug Icelandair til Pétursborgar og mikilvægi þess að borgin rækti hlutverk sitt sem forystuborg á Norðurslóðum. Þá var einnig fjallað um samstarf evrópskra borga í baráttunni gegn fíkniefnum en Pétursborg hefur ásamt Reykjavík verið virkur þátttakandi í því samstarfi og forseti verið verndari þess.