Veftré Print page English

Fundur með forseta Rússlands. Umhverfisvernd og samvinna á Norðurslóðum


Á fundi forseta Íslands Ólafs Ragnars Grímssonar með Vladimir Putin forseta Rússlands í Salekhard fyrr í dag, miðvikudaginn 25. september, kom fram ríkur áhugi forseta Rússlands á að efla samvinnu á Norðurslóðum, auka viðskipti við Ísland og heimsækja landið á næsta ári.


Forsetarnir höfðu áður ásamt forseta Finnlands, Sauli Niinistö, flutt ræður á ráðstefnu um umhverfismál á Norðurslóðum sem Rússneska landfræðifélagið efnir til í Salekhard, helstu borg Yamal Nenets fylkis í Norður-Rússlandi.


Í ræðu Putins komu fram eindregnar áherslur á nauðsyn umhverfisverndar á Norðurslóðum og voru þau viðhorf ítrekuð á fundi forsetanna. Jafnframt ræddu þeir um hina nýju stöðu sem skapast hefði vegna vaxandi áhuga forysturíkja í Asíu og Evrópu á málefnum Norðurslóða. Forseti Rússlands lýsti ítarlega viðhorfum og undirbúningi Rússa vegna þeirra nýju siglingaleiða sem væru að opnast vegna bráðnunar hafíss, jafnvel í 3-4 mánuði á ári hverju.


Á fundinum var einnig fjallað um aukin viðskipti milli Íslands og Rússlands, þátttöku íslenskra fyrirtækja og sérfræðinga í hitaveituframkvæmdum og nýtingu jarðhita í Rússlandi sem og fjölgun ferðamanna, m.a. í kjölfar áætlunarflugs Icelandair til Pétursborgar.
Þá fagnaði forseti Rússlands sérstaklega opnun Kjarvalssýningar í Pétursborg og öðrum menningaratburðum í tilefni af 70 ára afmæli stjórnmálasambands landanna.


Í ræðu sinni á ráðstefnunni í Salekhard ítrekaði forseti Íslands nauðsyn þess að forysturíki í Asíu og Evrópu, sem létu nú til sín taka í auknum mæli á Norðurslóðum, virtu þær venjur og lýðræðislegu starfshætti sem mótast hefðu í Norðurslóðasamstarfinu ásamt því að virða réttindi og menningu fólksins sem búið hefði á Norðurslóðum um aldir og árþúsund. Ræðu forseta má nálgast á heimasíðu embættisins.


Þá átti forseti Íslands fund með forseta Finnlands, Sauli Niinistö, þar sem áréttaður var eindreginn vilji forsetanna til að efla samstarf sitt í málefnum Norðurslóða. Ræddu þeir m.a. undirbúning fyrir hið alþjóðlega þing Arctic Circle – Hringborð Norðurslóða – sem haldið verður í Reykjavík 12.-14. október en forsetarnir hafa á fyrri fundum sínum, á Íslandi og í Finnlandi, rætt um þá nýju nálgun í málefnum Norðurslóða sem skipulagning Arctic Circle felur í sér.


25.  september 2013