Veftré Print page English

Arctic Circle. Undirbúningsfundir


Forseti á fundi í New York með Tracey Foster og Robyn Engibous um undirbúning alþjóðaþingsins Arctic Circle – Hringborðs Norðurslóða sem haldið verður í Hörpunni 12.-14. október. Mikil þátttaka verður í þinginu bæði frá ríkjum Norðurslóða og forysturíkjum í Asíu og Evrópu og munu sækja það forystumenn, vísindamenn, sérfræðingar, athafnamenn og fulltrúar frumbyggja og almannasamtaka. Rætt var um dagskrá Arctic Circle og málstofur sem þar verða haldnar á vegum ýmissa stofnana og samtaka.