Veftré Print page English

Norðurslóðaráðstefna í Rússlandi


Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson situr í dag og á morgun, 24. og 25. september, ráðstefnu um málefni Norðurslóða, The Arctic: Territory of Dialogue, sem Rússneska landfræðifélagið efnir til í Salekhard í Yamal Nenets fylki í Norður-Rússlandi.

 

Á ráðstefnunni, sem einkum er sótt af vísindamönnum, sérfræðingum, kjörnum fulltrúum og embættismönnum, verður aðallega fjallað um nauðsyn umhverfisverndar á Norðurslóðum og hvernig hin viðkvæma náttúra verður best varin fyrir auknum umsvifum, framkvæmdum og atvinnurekstri á svæðinu.


Auk forseta Íslands munu forseti Rússlands, Vladimir Putin, og forseti Finnlands, Sauli Niinistö, flytja ræður á ráðstefnunni.


Á morgun, miðvikudaginn 25. september, mun forseti Íslands eiga fund með forseta Finnlands um aukið samstarf Íslendinga og Finna á Norðurslóðum en málþing um Norðurslóðir var haldið í tengslum við opinbera heimsókn forseta Finnlands til Íslands fyrr á þessu ári.

 

Þá mun forseti Íslands einnig eiga fund með forseta Rússlands, Vladimir Putin, þar sem fjallað verður um þróun samstarfs á Norðurslóðum, m.a. í ljósi áheyrnaraðildar forysturíkja í Asíu og Evrópu að Norðurskautsráðinu. Einnig verður rætt um vaxandi samstarf Íslendinga og Rússa á sviðum viðskipta, ferðaþjónustu og orkumála sem og menningaratburði á Íslandi og í Rússlandi í tengslum við það að sjötíu ár eru liðin frá því að löndin tóku upp formlegt stjórnmálasamband.

 

24. september 2013