Veftré Print page English

Jarðhitaverkefni í Asíu


Forseti á fund með Hauki Harðarsyni, forstjóra Orka Energy, um jarðhitaverkefni í Kína, Filippseyjum og fleiri löndum, víðtækt samstarf við Sinopec um byggingu hitaveitna í kínverskum borgum sem og hugmyndir um að nýta jarðhita í þágu ylræktar til að spara flutningskostnað á matvælum. Fjölmörg íslensk verkfræði- og tæknifyrirtæki taka þátt í þessum verkefnum og mikill áhugi er á að efla þau frekar og nýta kunnáttu og reynslu Íslendinga.