Veftré Print page English

Samvinna við Abu Dhabi


Forseti á fund með sendinefnd frá Abu Dhabi, sem kynnir sér reynslu Íslendinga af nýtingu á hreinni orku, og heimsækir fyrirtæki á Reykjanesi sem nýta jarðhita í þágu ferðaþjónustu, þurrkunar matvæla og framleiðslu á snyrti- og heilbrigðisvörum. Fulltrúar í sendinefndinni voru frá Masdar og Mumbdala en Masdar hefur haft forystu á sviði fjölþættrar nýtingar hreinnar orku og skipulagt árlega heimsráðstefnu um þau efni, World Future Energy Summit.