Veftré Print page English

Viðskiptasamvinna á Norðurslóðum


Forseti flytur ræðu og tekur þátt í umræðum á Arctic Businss Round Table sem haldið er í Fram safninu í Osló. Viðfangsefni málþingsins er að þróa aukna samvinnu á sviði viðskipta og efnahagslífs á Norðurslóðum með virkri þátttöku fyrirtækja, vísindastofnana sem og stjórnvalda. Að málþinginu standa Arctic Forum Foundation og Konrad Adenauer Stiftung. Þátttakendur eru einkum frá norður Rússlandi og Þýskalandi. Málþingið fer fram 29. og 30. þessa mánaðar.