Veftré Print page English

Martti Ahtisaari


Forseti á fund með fyrrverandi forseta Finnlands og Nóbelsverðlaunahafanum Martti Ahtisaari sem heimsækir Ísland vegna NORIS ráðstefnunnar. Á fundinum var fjallað um stöðu mála í ýmsum heimshlutum, friðarumleitanir sem Ahtisaari tekur þátt í, óvissuna í Miðausturlöndum og samningaviðræður milli Ísraels og Palestínumanna sem og kynningu á alþjóðavettvangi á árangri Norðurlanda á sviði efnahagsmála, velferðar og lýðræðis.