//

Veftré Print page English

Rannsóknarþing Norðursins


Forseti á fund með prófessor Lassi Heininen, stjórnarformanni Rannsóknarþings Norðursins NRF, sem hélt í síðustu viku málþing á Akureyri um áhrif loftslagsbreytinga á Norðurslóðir. Á fundinum var fjallað um framhald samvinnu vísindamanna og kjörinna forystumanna á Norðurslóðum, Hringborð Norðurslóða og stöðu Norðurslóðamála í Finnlandi en Lassi Heininen er prófessor við Háskóla Lapplands.