Samúðarkveðjur til Spánverja
Forseti sendi Jóhanni Karli konungi Spánar og spænsku þjóðinni samúðarkveðjur frá sér og íslensku þjóðinni í kjölfar hins skelfilega lestarslyss. Hugur Íslendinga væri með fjölskyldum og vinum þeirra sem látist hafa og einnig þeim sem nú berjast fyrir lífi sínu á sjúkrahúsum.