Veftré Print page English

Afhending undirskrifta


Forseti tók á móti forsvarsmönnum undirskriftasöfnunar vegna laga um veiðigjald sem Alþingi hefur nýlega afgreitt. Undirskriftasöfnunin hefur farið fram undanfarnar vikur og eftir að forseti hafði tekið við nafnalistum ræddi hann við forsvarsmenn söfnunarinnar um veiðigjöld, arð af auðlindum þjóðarinnar, þróun beins lýðræðis og stjórnskipunar.