Veftré Print page English

Fyrirlestur Ban Ki-moon


Forseti er viðstaddur fyrirlestur framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, Ban Ki-moon, í hátíðarsal Háskóla Íslands. Í fyrirlestrinum, sem bar heitið Iceland and the United Nations: Building a Sustainable Future for All, fjallaði framkvæmdastjórinn um margvíslegt framlag Íslendinga til framfara og sjálfbærni í veröldinni, ræddi glímuna við loftslagsbreytingar og fátækt, sem og stöðuna á ýmsum átakasvæðum. Hvatti hann Íslendinga til enn víðtækari þátttöku í verkefnum Sameinuðu þjóðanna.