Veftré Print page English

Málþing um sjávarútveg Íslendinga


Forseti flytur ávarp á málþingi um sjávarútveg Íslendinga sem fram fór í Sjóferðasafninu í Bremerhaven (Schiffahrtsmuseum). Í ávarpi sínu lagði forseti áherslu á að Íslendingar kappkostuðu ad beita vísindalegum sjónarmiðum við nýtingu auðlinda hafsins. Í öðrum erindum var m.a. gerð grein fyrir grunnþáttum íslenska fiskveiðistjórnunarkerfisins og sjónarmiðum kaupenda íslensks fisk í Þýskalandi. Ræða forseta. Mynd