Veftré Print page English

Opinber heimsókn til Þýskalands


Forseti fer í næstu viku í opinbera heimsókn til Þýskalands í boði forseta Þýskalands, Joachim  Gauck. Auk forseta og forsetafrúar verða Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra, embættismenn utanríkisráðuneytisins og forsetaskrifstofu og fulltrúar vísinda, tækni, atvinnulífs og menningar með í för. Heimsóknin hefst í Berlín mánudaginn 24. júní og lýkur í Leipzig föstudaginn 28. júní.
Forseti mun eiga fundi með forseta Þýskalands, Angelu Merkel kanslara og Norbert Lammert, forseta Sambandsþingsins. Þá verða haldin málþing um orkumál, einkum nýtingu jarðhita í Þýskalandi og víðar í Evrópu, og um upplýsingatækni, Norðurslóðir, sjálfbærar fiskveiðar og nýtingu sjávarafla. Fréttatilkynning.