Heimilisiðnaðarfélag Íslands
Forseti tekur á móti stjórn og félögum Heimilisiðnaðarfélags Íslands í tilefni af aldarafmæli félagsins. Félagsmenn klæddust íslenskum búningum frá ýmsum tímum og í ávarpi þakkaði forseti félaginu fyrir framlag þess til að varðveita þjóðbúninginn og efla þekkingu og vitund landsmanna um hinar ýmsu gerðir hans frá fyrri tímum.