Evrópska einkaleyfastofnunin
Forseti á fund með Benoit Battistelli, forstjóra Evrópsku einkaleyfastofnunarinnar, og öðrum stjórnendum hennar ásamt fulltrúum Einkaleyfastofu en um þessar mundir er haldið á Íslandi alþjóðlegt þing evrópskra ríkja um þau viðfangsefni sem hæst ber á sviði einkaleyfa, einkum í kjölfar byltingar í pplýsingatækni og hraðra breytinga á því sviði. Rætt var um stöðu ýmissa ríkja á sviði einkaleyfa, ólíkan lagaramma í Evrópu, Bandaríkjunum og Asíu, mikilvægi nýsköpunar og frjáls flæðis upplýsinga í framþróun þjóðfélaga og lýðræðis.