Veftré Print page English

Hringborð Norðurslóða. Undirbúningur


Forseti tekur þátt í lokadegi viðræðna um undirbúning að Hringborði Norðurslóða, Arctic Circle, sem haldið verður á Íslandi í haust. Rætt var um dagskrá Hringborðsins og þátttakendur sem og samstarf við fjölmargar stofnanir, samtök og aðila sem þegar hafa lýst áhuga á þátttöku í Hringborðinu og samstarfi við það í framtíðinni. Einnig var rætt við fulltrúa Norðurslóðastarfs sem tengist Akureyri, Háskólanum á Akureyri, Rannsóknarþingi Norðurslóða og Norðurslóðanetinu.