Veftré Print page English

Fjölskylduhjálpin


Forseti er viðstaddur opnun nýs húsnæðis Fjölskylduhjálparinnar sem er í Breiðholti en með því batnar mjög aðstaða til að sinna þeim sem leita aðstoðar. Húsnæðið er stærra, kæligeymslur fyrir matvæli og rými fyrir föt. Í ávarpi þakkaði forseti Fjölskylduhjálpinni fyrir margvíslegt framlag á undanförnum árum og hvatti til samstarfs allra þeirra sem sinna þeim sem búa við minnst efni í íslensku samfélagi.