Veftré Print page English

Kynning á upplýsinga- og hátækni


Forseti sækir kynningu á upplýsinga- og hátækni sem haldin er í Háskólanum í Reykjavík í tengslum við opinbera heimsókn forseta Finnlands. Fundinum stjórnaði Ari Jónsson rektor háskólans og þar fluttu kynningar Þorsteinn I. Sigfússon forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Jón Ágúst Þorsteinsson frá Marorku, Vilborg Einarsdóttir frá Mentor, Sigmar Guðbjörnsson frá Stjörnu-Odda og Pétur Guðjónsson frá Marel.