Veftré Print page English

Klasasamstarf


Forseti á fund með dr. Gerd Meier zu Köcker og Hákoni Gunnarssyni um þróun klasasamstarfs í jarðhita, sjávarútvegi og ferðaþjónustu en margvísleg reynsla hefur fengist af slíku samstarfi víða um heim. Einkum var rætt um hvernig hægt er að nýta hinn góða árangur sem var af jarðhitaráðstefnunni í Hörpu í mars til að byggja upp árlegan vettvang samræðna og samvinnu um þróun jarðhita víða um heim.