Ný ríkisstjórn
Forseti á fund með formanni Framsóknarflokksins Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni sem greindi forseta frá niðurstöðum viðræðna Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks um myndun nýrrar ríkisstjórnar. Í kjölfarið var ákveðið að ríkisráðsfundur fráfarandi ríkisstjórnar verði á morgun kl. 11:00 og að ný ríkisstjórn taki síðan við á Bessastöðum á ríkisráðsfundi kl. 15:00 sama dag.