Veftré Print page English

Heklugos. Hönnun á Suðurnesjum


Forseti sækir tískusýninguna Heklugos þar sem kynnt er fjölbreytt hönnun á Suðurnesjum. Tískusýningin er samstarfsverkefni ýmissa fyrirtækja á Suðurnesjum, Atvinnuþróunarfélags Suðurnesja og Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar. Einnig tóku SKASS, samtök kraftmikilla, alvöru, skapandi Suðurnesjakvenna og Duty Free Fashion þátt í sýningunni sem fram fór í kvikmyndaverinu Atlantic Studios. Þá skoðaði forseti einnig sýningar ýmissa hönnuða á Suðurnesjum í frumkvöðlasetrinu Eldey.