Veftré Print page English

Sendinefnd frá Alaska


Forseti á fund með sendinefnd frá Alaska, sem skipuð er fulltrúum stofnana og viðskiptasamtaka, en hún hefur átt viðræður við fjölmarga aðila í íslensku atvinnulífi: ferðaþjónustu, fiskiðnaði og orkuframleiðslu. Rætt var um vaxandi tengsl Íslands og Alaska og hvernig hægt er að virkja á skipulegan hátt áhuga fjölmargra aðila til samvinnu á ýmsum sviðum. Fundinn sat einnig sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi.