Veftré Print page English

Föroyingafélagið


Forseti sækir afmælishátíð Föroyingafélagsins í tilefni af 70 ára afmæli þess. Í ávarpi rakti forseti náin tengsl og vináttu Færeyinga og Íslendinga, ríkan vilja til samstöðu og samhjálpar, sameiginlega sögu að fornu og nýju; rifjaði einnig upp minningar frá æskuárum vestur á fjörðum þegar sjómenn af færeyskum skútum voru tíðir gestir í byggðarlaginu. Menntamálaráðherra Færeyja flutti einnig ávarp í afmælishófinu.