Veftré Print page English

Sendiherra Indlands


Forseti á fund með sendiherra Indlands Ashok Das um árangur af ferð forseta til Indlands, þróun verkefna varðandi áframhaldandi þjálfun indverskra jöklafræðinga á Íslandi, samstarf þjóða og samfélaga á Himalajasvæðinu, nýtingu jarðhita á Indlandi og þátttöku í Hringborði Norðurslóða - Arctic Circle sem haldið verður í Reykjavík í haust.