Veftré Print page English

Sendiherra Ítalíu


Forseti á fund með sendiherra Ítalíu, Antonio Bandini, sem senn lætur af störfum. Rætt var um langvarandi samband Íslands og Ítalíu, samstarf forseta á fyrri áratugum við nýjan utanríkisráðherra Ítalíu Emmu Bonino, þróun mála í Evrópusambandinu og á Norðurslóðum sem og áhrif nýliðinna alþingiskosninga á viðræður Íslands við Evrópusambandið.