Veftré Print page English

Sendiherra Taílands


Forseti á fund með nýjum sendiherra Taílands, frú Vimon Kidchob, sem afhenti trúnaðarbréf á Bessastöðum. Rætt var um hið öfluga samfélag Taílendinga á Íslandi en sendiherrann hafði áður heimsótt hóp Taílendinga á Akureyri og kynnst ánægju þeirra með störf, aðbúnað og þjóðfélagshætti á Íslandi. Þá var einnig rætt um aukin samskipti Íslands við ríki í Asíu og möguleika á nýtingu hreinnar orku í Taílandi.

 

photo 1