Veftré Print page English

Fundir með formönnum flokkanna


Forseti ræðir niðurstöður alþingiskosninga og viðhorf til stjórnarmyndunar á fundum með formönnum flokkanna sem fulltrúa eiga á Alþingi. Til fundar við forseta komu: formaður Sjálfstæðisflokksins Bjarni Benediktsson, formaður Framsóknarflokksins Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Samfylkingarinnar - Jafnaðarmannaflokks Íslands Árni Páll Árnason, formaður Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs Katrín Jakobsdóttir, formaður Bjartrar framtíðar Guðmundur Steingrímsson og Heiða Kristín Helgadóttir, stjórnarformaður flokksins, og að síðustu kapteinn Pírata, Birgitta Jónsdóttir.