Veftré Print page English

Rannsóknarsamstarf við Alaska


Forseti á fund með fulltrúum Háskólans í Fairbanks í Alaska og íslenskum samstarfsaðilum þeirra um samstarf í rannsóknum sem einkum beinist að því að nýta litlar ómannaðar flugvélar í þágu rannsókna á fjölmörgum þáttum náttúru og lífríkis. Aðstæður í Alaska og á Íslandi eru hentugar til slíks þróunarstarfs og hafa í þessu skyni verið viðræður bæði við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík.