Ritstjórn Washington Post
Forseti á ásamt Alice Rogoff, útgefanda AlaskaDispatch, og Kuupik Kleist, fyrrum forsætisráðherra Grænlands, fund með ritstjórn Washington Post þar sem rætt var um þróun Norðurslóða, vaxandi áhuga ríkja í Asíu og Evrópu á málefnum svæðisins, væntanlega formennsku Kanada og Bandaríkjanna í Norðurskautsráðinu og hvernig hinn nýi vettvangur, Hringborð Norðurslóða, getur nýst í þágu víðtækrar og lýðræðislegrar umræðu um stefnumótun á svæðinu.