Veftré Print page English

Dianne Feinstein


Forseti á fund með Dianne Feinstein öldungadeildarþingmanni á skrifstofu hennar í Öldungadeild Bandaríkjaþings. Rætt var um aukna nýtingu jarðhita í Bandaríkjunum, m.a. í heimaríki hennar, Kaliforníu, og samvinnu við íslenska vísindamenn og tæknifyrirtæki á því sviði. Þá var einnig rætt um aukið mikilvægi Norðurslóða í utanríkisstefnu Bandaríkjanna og áhuga ríkja í Asíu og Evrópu á auðlindanýtingu og nýjum siglingaleiðum á svæðinu, breytt viðhorf í öryggismálum og þörfina á víðtæku rannsóknarsamstarfi. Mynd.