Veftré Print page English

Indland og Himalajasvæðið


Forseti á fund með Mani Shankhar Aiyar, þingmanni og fyrrum ráðherra á Indlandi, sem sækir The Reykjavík Congress on Human Rights 2013, ráðstefnu sem haldin verður á Íslandi í vikunni. Rætt var um þróun efnahagslífs og stjórnmála á Indlandi, sambúð þjóðanna á Himalajasvæðinu og nauðsyn aukinna samræðna þeirra á milli um áhrif bráðnunar jökla á vatnsbúskap og efnahagslíf.