Ríkisstjóri Uttarakhand
Forseti á fund með Aziz Qureshi, ríkisstjóra Uttarakhand, þar sem rætt var um sambúð Indlands við helstu nágrannaríki, stjórnmálaþróun á lýðveldistíma Indlands en ríkisstjórinn gekk ungur í Kongressflokkinn á valdatíma Nehru og hefur gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum á opinberum vettvangi. Að fundinum loknum efndi ríkisstjórinn til móttöku til heiðurs forseta þar sem m.a. voru rektorar nokkurra háskóla í fylkinu og forystufólk á sviði vísinda og rannsókna. Myndir.