Veftré Print page English

Forsætisráðherra Uttarakhand


Forseti á fund með Vijay Bahuguna, forsætisráðherra Uttarakhand, um virkjun vatnsafls í fylkinu en fulltrúar Landsvirkjunar og Verkís hafa kannað möguleika á smærri vatnsaflsvirkjunum og indverskir sérfræðingar hafa vaxandi áhuga á samstarfi við Ísland á þessu sviði. Einnig var fjallað um mikilvægi náttúruverndar, verndun hinna miklu skóga fylkisins og hætturnar sem felast í bráðnun jökla á Himalajasvæðinu. Myndir.