Veftré Print page English

Ohio háskólinn. Samstarf um jöklarannsóknir


Forseti á fund með dr. Lonny Thompson, prófessor og forstöðumanni jöklarannsókna við Ohio State háskólann í Bandaríkjunum. Hann var ásamt Yao Tandong helsti hvatamaður að Third Pole Environment samstarfinu og hélt fyrir tæpum tveimur árum opinberan fyrirlestur í boði forseta og Háskóla Íslands um rannsóknir sínar á jöklum í ýmsum heimsálfum. Á fundinum var einkum rætt um margvíslegt framlag Íslands til alþjóðlegrar samvinnu í jöklarannsóknum.