Veftré Print page English

ICIMOD


Forseti á fund með dr. David J. Molden, forstöðumanni ICIMOD stofnunarinnar sem er alþjóðleg stofnun með aðsetur í Katmandu í Nepal og komið var á fót til að efla vísindasamvinnu milli þjóðanna á Himalajasvæðinu. Á fundinum var einkum fjallað um hvernig efla mætti tengsl stofnunarinnar við rannsóknarsamfélög á Norðurslóðum og aðstoð hennar við að þjálfa unga jöklafræðinga, sérstaklega frá smærri ríkjum á Himalajasvæðinu. Mynd.