Veftré Print page English

Jarðvísindi


Forseti á fund með Jaipal Reddy, ráðherra vísinda og tækni í ríkistjórn Indlands, en hann sinnir m.a. eflingu jarðvísinda. Ráðherrann flutti ásamt forseta ræðu við setningu ráðstefnu um jökla Himalajafjalla sem haldin er í Wadia jarðvísindastofnuninni í Dehradun. Á fundinum var rætt um þá lærdóma sem draga má af þróun rannsóknarsamstarfs á Norðurslóðum, víðtækara samstarf um rannsóknir á náttúrufari og aukna samvinnu milli þeirra þjóða sem byggja Himalajasvæðið. Þá kynnti forseti ráðherranum skýrslu sem unnin hefur verið um þurrkun matvæla með sjálfbærum orkugjöfum.