Veftré Print page English

Viðtal um vatnsbúskap


Forseti ræðir við indverska kvikmyndaleikstjórann Shekar Kapur sem vinnur að efni í heimildamynd um vatn á jörðinni og margvíslega þætti vatnsbúskapar á heimsvísu. Viðtalið birtist á vefsíðu hans en í því var meðal annars fjallað um bráðnun íss og jökla á Norðurslóðum og Himalajasvæðinu, þróun úthafanna og áhrif loftslagsbreytinga á vatnsbúskap þjóða heims.