Veftré Print page English

Indverskir þingmenn


Forseti á fund með hópi indverskra þingmanna í Delhi um samstarf við Ísland á ýmsum sviðum, m.a. um jöklarannsóknir og þjálfun ungra indverskra jöklafræðinga, nýtingu jarðhita og þurrkun matvæla í ljósi þeirrar reynslu sem Íslendingar hafa aflað sér um þurrkun á sjávarafurðum. Meðal þeirra sem sátu fundinn voru Shashi Tharoor, Milind Deora og Sachin Pilot.