Veftré Print page English

Sendiherra Lettlands


Forseti á fund með nýjum sendiherra Lettlands, hr. Indulis Abelis, sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um traust tengsl Íslands við Eystrasaltsríkin, mikilvægt samstarf þeirra og Norðurlanda, sem mynda öflugan ríkjahóp í Norður-Evrópu, sem og þátttöku íslenskra fyrirtækja í efnahagslífi í Lettlandi og þær fórnir sem þjóðin hefur fært í glímunni við efnahagserfiðleika síðustu ára þar sem hrun varð í þjóðartekjum og fjöldi ungs fólks flutti úr landi.

 

lettland2013