Veftré Print page English

Sendiherra Rúanda


Forseti á fund með nýjum sendiherra Rúanda, frú Venetia Sebudandi, sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um uppbyggingu samfélagsins í kjölfar hinna hatrömu átaka á fyrri árum og áherslu stjórnvalda í Rúanda á að efla nýtingu hreinnar orku og tæknivæða efnahagslífið. Nú þegar sinna íslenskir sérfræðingar í jarðhitanýtingu könnun á möguleikum í Rúanda og námsmenn þaðan hafa hlotið þjálfun í Jarðhitaskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna á Íslandi.

 

ruanda2013