Forseti Íslands
The President of Iceland
Tískuhátíð
Forseti setur tískuhátíðina Reykjavík Fashion Festival en þar sýnir fjöldi íslenskra hönnuða verk sín. Í ávarpi áréttaði forseti aukna fjölbreytni á vettvangi íslenskrar tísku og hönnunar og velti fyrir sér ýmsum ástæðum að baki þessari ánægjulegu þróun. Sköpunarkrafturinn væri greinilega ráðandi og skorturinn á ráðandi "yfirstétt" í tískuheiminum hér heima opnaði ungu fólki aðgang á auðveldari hátt en í ýmsum öðrum löndum.
Letur: |
| |