Veftré Print page English

Norðurslóðir 2050


Forseti á fund með bandaríska fræðimanninum Laurence C. Smith, höfundi bókar sem fjallar um stöðu Norðurslóða í heimsmyndinni um miðbik þessarar aldar. Einkum var rætt um nauðsyn þess að styrkja áhuga stjórnvalda í Bandaríkjunum á framtíð Norðurslóða og hvernig allt bendi til að siglingar um Norðurslóðir muni aukast á næstu árum og áratugum en Laurence Smith hefur undanfarið einkum sinnt rannsóknum á slíkri þróun siglinga.