Veftré Print page English

Heillaóskir til páfa


Forseti sendir nýkjörnum páfa Frans I heillaóskir frá sér og íslensku þjóðinni. Í kveðjunni áréttaði forseti tengsl Íslendinga við hina kaþólsku kirkju, bæði á fyrri öldum og með vaxandi fjölda kaþólskra íbúa landsins á undanförnum árum. Ennfremur minntist forseti heimsóknar til Páfagarðs fyrir tveimur árum þegar hann ásamt Snæfellingum afhenti Páfagarði styttu af Guðríði Þorbjarnardóttur, tákn um náin söguleg tengsl kirkju og þjóðar. Fréttatilkynning.