Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi
Forseti afhendir stjórnunarverðlaun Stjórnvísi í hátíðarmóttöku í Turninum. Í stuttu ávarpi nefndi forseti hvernig verðlaunahafar og fyrirtæki þeirra sýndu þann árangur sem verið væri að ná víða í íslensku atvinnulífi þrátt fyrir erfiðleika undanfarinna ára. Samskip, Össur og Actavis væru fyrirtæki sem ættu sér uppruna í íslenskum veruleika og hefðu öðlast trausta stöðu á alþjóðlegum vettvangi. Vefur Stjórnvísi.