Veftré Print page English

Sendiherra Rúmeníu


Forseti á fund með nýjum sendiherra Rúmeníu, herra Matei-Viorel Ardeleanu, sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um verkefnin, sem einkum voru á dagskrá í opinberri heimsókn forseta til Rúmeníu fyrir nokkrum árum, aukinn áhuga á jarðhitanýtingu í Rúmeníu og þátttöku íslenskra tæknifyrirtækja í könnun, áætlanagerð og framkvæmdum. Þá var einnig fjallað um þróun stjórnmála í Rúmeníu, samskipti forseta landsins og viðhorf til breytinga á stjórnarskrá.

 

ardeleanu